Tónlist

Beyoncé með lag í Fifty Shades of Grey

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Svo virðist vera sem söngkonan Beyoncé eigi að minnsta kosti eitt lag í kvikmyndinni Fifty Shades of Grey sem frumsýnd verður á næsta ári.

Beyoncé birtir brot úr laginu á Instagram-síðu sinni og bendir aðdáendum sínum á að fyrsta stiklan úr myndinni verði frumsýnd næsta fimmtudag.

Kvikmyndin verður frumsýnd þann 14. febrúar, á sjálfan Valentínusardaginn, en hún er byggð á samnefndri skáldsögu eftir E. L. James. 

Leikstjóri myndarinnar er Sam Taylor-Johnson en í aðalhlutverkum eru Jamie Dornan og Dakota Johnson.


Tengdar fréttir

Plakatið afhjúpað

Beðið í ofvæni eftir kvikmyndinni Fifty Shades of Grey.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×