Lífið

Beyoncé mætir ekki í brúðkaup Kim Kardashian

Jay Z og Beyoncé meina ekkert illt með ákvörðun sinni að mæta ekki í brúðkaupið.
Jay Z og Beyoncé meina ekkert illt með ákvörðun sinni að mæta ekki í brúðkaupið. vísir/getty
Stjörnuparið Jay Z og Beyoncé ætla sér ekki að mæta í brúðkaup vina sinna Kanye West og Kim Kardashian þrátt fyrir góðan vinskap.

Heimildarmaður dagblaðsins The Sun segir ástæðuna vera að þau vilji ekki birtast í raunveruleikaþættinum Keeping up with the Kardashians sem mun að öllum líkindum hafa myndavélarnar í gangi alla athöfnina.

Samkvæmt heimildum The Sun ætlar Jay Z þó að bæta að upp fyrir að mæta ekki með því að splæsa hundrað þúsund bandaríkjadölum eða rúmlega ellefu milljónum íslenskra króna í að leigja snekkju fyrir Kim og Kanye sem þau geti notað í brúðkaupsferð sinni.

Ekki nóg með það heldur er rapparinn sagður ætla að halda rosalega steggjun handa Kanye á klúbb sínum 40/40 í New York.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×