Glamour

Beyoncé hvatti Serenu Williams til dáða á Wimbledon

Ritstjórn skrifar
Beyonce var í góðu stuði ásamt eiginmanni sínum, Jay-Z, þegar Serena sigraði á Wimbledon.
Beyonce var í góðu stuði ásamt eiginmanni sínum, Jay-Z, þegar Serena sigraði á Wimbledon. Myndir/Getty
Beyoncé og Jay-Z voru mætt á Wimbledon í dag til þess að hvetja Serenu Williams áfram. Þær hafa lengi verið vinkonur en Serena lék meðal annars í myndbandinu við lagið Sorry sem Beyoncé gaf út fyrr á árinu. Myndbandið má finna neðst í fréttinni. 

Wimbledon er tennismót sem haldið er árlega í London. Serena náði í dag að tryggja sér sjöunda titilinn á mótinu en hún hefur í mörg ár verið talin besta tenniskona heims enda hefur hún unnið 22 titla á ferlinum. 





Serena er engri lík en hún vann sinn sjöunda titil á Wimbledon í dag.





×