Tíska og hönnun

Beyoncé ekki bara í fríi á Íslandi: Setti naglaskraut á markaðinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Beyoncé dvelur nú á Íslandi með eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Jay Z, en svo virðist sem dvölin einkennist ekki aðeins af afslöppun.

Beyoncé lét nefnilega á markað naglaskraut vestan hafs í gær en um er að ræða samstarf hennar og merkisins NCLA.

Um er að ræða skraut sem hægt er að líma á neglurnar og hylja þær alveg en skrautið er innblásið af plötunni Beyoncé sem söngkonan gaf óvænt út í desember fyrra.

Hver pakki af skrauti kostar átján dollara, eða rúmlega tvö þúsund krónur.


Tengdar fréttir

Beyonce og Jay-Z í Bláa lóninu

Bandaríska ofurparið Beyoncé og Jay-Z eru eins og fram er komið á landinu. Ætla þau að halda upp á 45 ára afmæli rapparans sem hann fagnar þann 4. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×