Lífið

Beyoncé biður Gwyneth um skilnaðarráð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngkonan Beyoncé er búin að biðja leikkonuna Gwyneth Paltrow um skilnaðarráð samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

Mikið er búið að fjalla um það síðustu vikur að hjónaband Beyoncé og rapparans Jay Z standi á brauðfótum en Gwyneth skildi nýverið við tónlistarmanninn Chris Martin.

Heimildarmaður Us Weekly segir að Beyoncé og Jay Z muni skilja í haust, um leið og tónleikaferðalagi þeirra, On The Run, lýkur.

Gwyneth og Chris skildu í góðu og skrifaði leikkonan langa bloggfærslu um það. Því hefur Beyoncé leitað til hennar því hún vill fara sömu leið í sínum skilnaði.

„Daginn eftir að þau tilkynna þetta munu Bey og Jay sjást saman. Þá verður mikil ást á milli þeirra,“ segir heimildarmaður Us Weekly.

Beyoncé heimsótti Gwyneth á heimili hennar í Brentwood í síðustu viku til að ræða málin.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×