Betri frammistaða á plöntufæði Vera Einarsdóttir skrifar 16. ágúst 2017 10:00 Bergsveinn segist ekki lifa neinu leiðinda- eða meinlætalífi þó hann sé plöntuæta. "Þetta er bara spurning um að opna augun fyrir öðrum valkostum." MYND/EYÞÓR
Bergsveinn Ólafsson, knattspyrnumaður hjá FH, gerðist plöntuæta fyrir tveimur árum og er sannfærður um að það hafi hjálpað honum í boltanum. "Ég var maðurinn sem borðaði tvær kjúklingabringur í hádeginu og tvær á kvöldin ásamt fullt af skyri og hélt að það væri algerlega ómögulegt að ná árangri í íþróttum og byggja upp vöðva án þess að borða kjöt og mjólkurvörur. Ég hálfpartinn leit niður á fólk á plöntufæði og hafði enga trú á því," upplýsir Bergsveinn. Þegar kærastan hans gerðist vegan fór hann hægt og bítandi að mildast í þeirri afstöðu sinni.Ólíkt því sem Bergsveinn hélt hefur mataræðið ekki dregið úr frammistöðu hans í boltanum. „Þvert á móti sneri það dæminu við og ég hef aldrei verið í betra formi.“?MYND/EYÞÓR„Ég fór að lesa mér til um plöntufæði, horfa á myndbönd og hlusta á podköst og komst að því að íþróttamenn hefðu náð undraverðum árangri á slíku fæði. Margir töluðu um aukna orku og skjótari endurheimt eftir æfingar sem mér þótti hvort tveggja eftirsóknarvert. Ég hafði mikinn áhuga á að bæta frammistöðu mína í boltanum og hugsaði sem svo að það sakaði ekki að prófa,“ segir Bergsveinn. Hann byrjaði á einum mánuði. Það gekk svo vel að hann hefur ekki snúið aftur og hefur eingöngu lifað á plöntufæði síðan. Ólíkt því sem Bergsveinn hélt hefur mataræðið ekki dregið úr frammistöðu hans í boltanum. „Þvert á móti sneri það dæminu við og ég hef aldrei verið í betra formi.“ Bergsveinn borðar mikið af alls konar grænmeti, baunum, kornvörum, hnetum og fræjum. „Hann segist þó ekki lifa neinu leiðinda- eða meinlætalífi. „Ég borða hluti eins og tófú burrito, spínatlasanja og svartbaunaborgara sem er allt hvað öðru betra. Þetta er bara spurning um að opna augun fyrir öðrum valkostum,“ útskýrir Bergsveinn. Hann segist duglegur að elda sjálfur auk þess sem hann sæki veitingastaði eins og Gló. Aðspurður segir hann það vissulega hafa verið krefjandi að byrja. „Þú þarft að viða að þér upplýsingum um hráefni, safna uppskriftum og elda mikið sjálfur en þegar þetta er komið í rútínu er þetta ekkert mál.“ En hver skyldi munurinn á vegan- og plöntufæði vera? „Þessar stefnur eiga það sameiginlegt að menn borða ekki dýr eða dýraafurðir. Í plöntufæði er útgangspunkturinn hins vegar heilsusamlegra líf og áhersla á sem minnst unnin matvæli. Útgangspunkturinn hjá þeim sem eru vegan er í meira mæli dýravernd og umhverfissjónarmið þó margir séu vissulega líka með heilsusjónarmið í huga. Þar rúmast þó hlutir eins og kex, snakk og annað sem inniheldur ekki dýraafurðir þó það geti ekki endilega talist hollt. Slíkt tilheyrir ekki plöntufæði,“ útskýrir Bergsveinn. En hefur honum tekist að smita liðsfélagana í FH? „Já, þeir eru margir klárlega opnari fyrir þessu en aðallega hefur þetta þó náð eyrum nánustu ættingja og vina.“ Bergsveinn lauk BS-prófi í sálfræði í vor og er nú að bæta við sig jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði. Hann hyggst í framtíðinni flétta námið saman við reynslu sína úr íþróttum og almennri heilsurækt. Bergsveinn opnaði nýverið heimasíðuna beggiolafs.com en þar deilir hann reynslu sinni, ráðum og uppskriftum. Bergsveinn heldur fyrirlestur um plöntufæði á Fit & Run Expo í Laugardalshöll klukkan 17 föstudag. Sýningin er haldin samhliða skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Aðspurður segir Bergsveinn efnið höfða til hlaupara jafnt sem annarra íþróttamanna. „Ég hugsa að ég hlaupi hátt í tíu kílómetra í hverjum leik og dugar mataræðið vel til þess.“
Mest lesið Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lífið Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Lekker hæð listakonu til sölu Lífið Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Lífið Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Bíó og sjónvarp Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Lífið „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Lífið Svakalegasta atvinnuumsókn sem sést hefur á FM957 Lífið Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu Tónlist Fleiri fréttir Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lekker hæð listakonu til sölu „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Svakalegasta atvinnuumsókn sem sést hefur á FM957 Vöknuðu fyrir allar aldir til að gera aðra atlögu Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Heimafæðing Örnu Ýrar: „Ekki eins hræðilegt og margir halda“ Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Stefnir Megan Thee Stallion fyrir meint áreiti á vinnustað Flugfreyjuhattar Icelandair frá tískurisanum Balenciaga fá nýtt líf Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Kynferðislegt ofbeldi: Kynlíf eftir áföll Karlakórinn Esja tók frægasta slagara Backstreet Boys Flott flutti ódauðlega slagara með Sálinni og Ásgeiri Trausta Myndaveisla: Pattra og Gugusar hressastar í drykkjarpartýi Steggjun endaði á árshátíð RÚV Allt klárt fyrir tilraun við heimsmet í Hlíðarfjalli Hvað ber að hafa í huga þegar hvolpur kemur á heimilið Lagið Yfirgefinn varð til þegar Valdimar öskraði á hljómsveitarmeðlimi Félag Rikka Daða selur einbýli sem áður var í eigu Rikka Daða Öskur á tónleikum Laufeyjar öfugt ofan í aðdáendur „Óraunverulegustu fréttir sem við getum fært“ Vaknaði í angist alla morgna Stjörnulífið: „Þá er maður bara að sigla inní 17. mánuðinn á þessari meðgöngu“ Ragga Gísla útskýrir gjörninginn Fred Armisen kemur til Íslands Stjörnum hlaðið partý: Viktoría Beckham á hækjum í fimmtugsafmælinu Myndaveisla: Athafnakonur fögnuðu 25 ára afmæli á Edition „Ætla að verða 130 ára þannig að það er nægur tími til stefnu“ Sjá meira