Betri er krókur en kelda

Fréttablaðið Aðsendar greinar 30. janúar 2012 06:00
Ingimar Einarsson
ráðgjafi um mótunarstefnu í heilbrigðismálum
Ingimar Einarsson ráðgjafi um mótunarstefnu í heilbrigðismálum
Ingimar Einarsson skrifar:
Nú í byrjun árs hefur enn á ný blossað upp umræða um fyrirhugaða byggingu nýja Landspítalans. Tveir forsvarsmenn spítalans, Jóhannes M. Gunnarsson, læknisfræðilegur verkefnisstjóri, og Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, hafa farið mikinn í Fréttablaðinu og víðar. Nafnkunnir læknar og fyrrum ráðherrar hafa hreyft andmælum. Hjúkrunarfræðingar á Landspítala hafa tekið af allan vafa um stuðning sinn við verkefnið. Á sama tíma sýna skoðanakannanir að almenningur er andsnúinn þessum áformum. Það bendir því margt til þess að við núverandi aðstæður geti orðið erfitt að ná sátt um byggingu nýja Landspítalans.


Nýr spítali
Af hálfu Landspítalafólksins er því haldið fram að Landspítalinn sé mikilvægur hlekkur í þeim þekkingarklasa sem myndast hefur við Vatnsmýrina á undanförnum árum. Nálægð við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Íslenska erfðagreiningu og fyrirhugaða Vísindagarða er talin mikilvæg fyrir framþróun heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Nýi spítalinn sé best staðsettur við Hringbrautina eins og reyndar er búið að ákveða a.m.k. þrisvar sinnum.

Í nýjum Landspítala verði öryggi og vellíðan sjúklinga í öndvegi, einbýli muni draga verulega úr spítalasýkingum, vélskömmtun lyfja stuðli að auknu öryggi við lyfjagjafir, minniháttar skoðanir og viðtöl geti farið fram á stofu sjúklings, svo fá dæmi séu tekin. Jafnframt geti nýi spítalinn sinnt betur sínum rannsóknar- og kennsluskyldum og betri skilyrði skapist fyrir teymisvinnu fagfólks. Reiknimeistarar hafa komist að þeirri niðurstöðu að hátt í þriggja milljarða hagræði hljótist árlega af því að hafa alla starfsemi Landspítalans á einum stað. Sambærileg upphæð á ári hverju myndi duga til að borga niður væntanlegt lán lífeyrissjóðanna á nokkrum áratugum.


Breytt skipulag og áherslur
Í nágrannalöndum okkar standa yfir víðtækar breytingar á þjónustu sjúkrahúsa. Síðustu tveir áratugir hafa reyndar einkennst af sameiningu sjúkrahúsa og aukinni tæknivæðingu. Þessar breytingar hafa einkum verið gerðar í ljósi þess að aukin sérhæfing í sjúkrahúsrekstri kalli á stærri einingar og samþættingu starfseminnar á stærri landsvæðum en áður. Með hliðsjón af yfirstandandi breytingum á stofnunum heilbrigðiskerfisins mætti ætla að innan fárra ára verði aðeins tvö sjúkrahús sem geti staðið undir nafni sem sérgreina- og hátæknisjúkrahús á Íslandi, þ.e. Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA).

Í kjölfar þessara umskipta er það hald margra að á landsbyggðinni verði grunnþjónusta á sviði heilsugæslu og öldrunarþjónustu mest áberandi. Engu að síður má telja víst að stærstu landsbyggðarsjúkrahúsin muni áfram gegna veigamiklu hlutverki sem vettvangur fyrir m.a. minni inngrip og þjónustu við langveika sjúklinga. Við upplifum nú einnig þær breytingar að í stað megináherslu á sérhæfða meðhöndlun og lækningar sjúkdóma er nú æ ríkari áhersla lögð á forvarnir, heilsuvernd, greiningu og fræðslu, auk endurhæfingar vegna afleiðinga sjúkdóma og annarra áfalla. Þessum viðfangsefnum er í vaxandi mæli gert jafn hátt undir höfði og annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu.


Ný umgjörð
Ef marka má það sem komið hefur fram í greinarskrifum dagblaðanna undanfarið, virðist umræðan um nýja Landspítalann vera á villigötum. Í stað þess að líta á heilbrigðiskerfið í heild sinni og meginþætti þess, skipa menn sér í fylkingar með eða á móti nýja Landspítalanum. Nær væri að setja sér markmið um að tryggja betra jafnvægi milli heilsugæslu, sérgreinalækninga og sjúkrahúsþjónustu. Til þess að svo megi verða er brýnt að skapa umgjörð um samvinnu og skipulag þjónustuþátta sem tæki á helstu heilbrigðisvandamálum þjóðarinnar og legði sömuleiðis línurnar fyrir markvissari forgangsröðun verkefna.

Heilsugæslan hefur átt undir högg að sækja um langt árabil jafnvel þótt hin síðari ár hafi verið skýrt kveðið á um að hún skuli að jafnaði vera fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. Nú vantar fjölda heimilislækna bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Til þess að ná jafnvægi í mönnun heilsugæslunnar þyrfti að tryggja að um helmingur þeirra lækna sem útskrifast næstu tíu árin leggi fyrir sig heimilislækningar. Jafnhliða er mikilsvert að þess verði freistað að koma á skipulegri þjónustustýringu til að tryggja samfellu í þjónustu við sjúklinga. Áætlun um frekari uppbyggingu og þróun heilbrigðiskerfisins getur þannig ekki leyft sér að taka aðeins mið af eflingu sjúkrahúsþjónustunnar.


Samhæfð áætlun
Endanleg niðurstaða um hvort ráðist verður í byggingu nýja Landspítalans verður væntanlega tekin á Alþingi á yfirstandandi þingi. Sú ákvörðun mun trúlega ráðast af því hvort ríkisstjórninni takist að sannfæra þingheim um hvort fjárhagslegur, jafnt sem faglegur grundvöllur sé fyrir framkvæmdinni. Enginn vafi er á því að nýr Landspítali muni verða flaggskip íslenskrar heilbrigðisþjónustu og lyftistöng fyrir alla meðferð, lækningar, kennslu og rannsóknar- og þróunarstarf í landinu. Jafnmikilvægt er að tryggja að samtímis verði ráðist í eflingu heilsugæslunnar og tryggt að forvörnum og heilsuvernd sé sinnt til samræmis við það sem best gerist annars staðar. Ekki verður heldur litið framhjá því að starfsemi sjálfstætt starfandi sérgreinalækna er einn af grunnþáttum heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi.
Núverandi staða heilbrigðismála kallar á raunhæfa framtíðarsýn og samhæfða framkvæmdaáætlun. Sú áætlun verður að taka jafnt til uppbyggingar hins nýja spítala sem og eflingar heilsugæslunnar. Til að forðast misskilning skal að lokum undirstrikað að þessi verkefni þola ekki langa bið.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Betri er krókur en kelda