Vísir býður lesendum sínum nú enn betri þjónustu en áður í lýsingum frá leikjum í íslenska fótboltanum.
Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins var sett á laggirnar árið 2005 til að lýsa leikjum á Íslandsmótinu í knattspyrnu.
Nýtt tímabil hefst í Pepsi-deild karla í dag og það áttunda í röðinni sem verður lýst á Boltavaktinni.
Boltavaktin er hönnuð af starfsmönnum 365 og hefur verið í stöðugri þróun í gegnum árin. Í dag fá lesendur að sjá nýjar viðbætur í lýsingarkerfinu sem mun færa þeim meiri upplýsingar um framvindu leiksins í rauntíma.
Lýsingin á Boltavaktinni verður ítarlegri, með meiri upplýsingum um framvindu leiksins. Ber þar hæst sérstök samantekt á tölfræði leiksins sem uppfærist sjálfskrafa eftir því sem líður á hann.
Eins og áður mun blaðamaður á vellinum lýsa því sem fyrir augu ber auk þess sem umfjöllun og viðtöl við þjálfara og leikmenn birtast eftir leik.
Á þeim dögum þar sem fleiri en einn leikur er í gangi samtímis verður lesendum boðið upp á að fylgjast þeim öllum samtímis á Miðstöð Boltavaktarinnar, www.visir.is/boltavakt. Þar er einnig hægt að komast inn í leiklýsingu hvers leiks.
Það er von Vísis að með þessari þjónustu muni notendur síðunnar fá bestu mögulegu lýsingu frá knattspyrnuleikjum hér á landi.
Hér fyrir neðan má sjá lýsingu frá viðureign KR og Stjörnunnar í Pepsi-deildinni með öllum nýju viðbótunum.
Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Leikmönnum Pepsi-deildar karla hefur gengið afar illa að nýta vítaspyrnur sínar í sumar og vítin voru eitt af umræðuefnunum í Pepsimörkunum í gær.
Meira
Greta Mjöll Samúelsdóttir, fyrirliði Breiðabliks endaði síðan leikinn á móti Selfossi í kvöld á því að vera borin útaf eftir slæmt höfuðhögg. Breiðablik vann leikinn 4-1 og er með fullt hús eftir fjór...
Meira
Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í Pepsi-deild kvenna í kvöld þegar liðið vann 4-1 sigur á Selfossi á Kópavogsvellinum. Breiðablik hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í sumar og er á toppnum í d...
Meira
FH vann sinn fyrsta sigur í Pepsi-deild kvenna í kvöld er liðið lagði Aftureldingu. Danka Podovac fór á kostum í liði Stjörnunnar gegn HK/Víkingi og skoraði fjögur mörk.
Meira
Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðarson skoraði flottasta markið í 3. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta að mati lesenda Vísis en kosið var á milli fimm fallegustu markanna hér inn á Vísi. Lesendur Vísis f...
Meira
"Hún er með risastóran skurð eftir að lærið var opnað að aftan," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson um meiðsli Margrétar Láru Viðarsdóttur.
Meira
Róbert Örn Óskarsson var hetja FH-inga í 1-0 sigri á Blikum í Pepsi deild karla í kvöld. Blikar fengu víti á 89. mínútu og gátu jafnað leikinn en Róbert varði vítið og tryggði gestunum stigin þrjú.
Meira
Skagamenn fengu sín fyrstu stig í sumar með sigri á Fram, 2-0, í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Páll Gísli Jónsson, markmaður íA, átti stórleik í fyrri hálfleik og bjargaði Skagamönnum oft...
Meira
Stjarnan og Valur gerður 1-1 jafntefli í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Samsung-vellinum í Garðabæ. Stjörnumenn gerðu eina mark fyrri hálfleiksins en g...
Meira
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur valið 23 leikmenn í A-landslið kvenna sem mun leika æfingaleik gegn Skotum á Laugardalsvelli þann 1. júní næstkomandi.
Meira
Róbert Örn Óskarsson hefur farið á kostum á milli stanganna hjá Íslandsmeisturum FH í byrjun tímabils. Hafnfirðingar sækja Breiðablik heim í kvöld.
Meira
Keflavík og Fylkir þurftu að skipta með sér stigunum í leik liðanna suður með sjó í 4. umferð Pepsi-deild karla í kvöld. Keflavík spilaði allan síðari hálfleikinn manni færri en bæði lið klúðruðu víta...
Meira
Þór Akureyri náði í sín fyrstu stig á þessari leiktíð eftir 1-0 sigur gegn Víkingi frá Ólafsvík í Pepsi-deild karla í dag. Liðin mættust á Akureyri og höfðu heimamenn betur í heldur bragðdaufum leik.
Meira
KR-ingar héldu sigurgöngu sinni í Pepsi-deild karla í knattspyrnu áfram þegar liðið vann sanngjarnan 2-0 útisigur á ÍBV í Eyjum. Baldur Sigurðsson var enn á ný á skotskónum hjá KR.
Meira
Stórleikur fer fram í Vestmannaeyjum í dag þegar ÍBV tekur á móti KR í fjórðu umferð Pepsi-deild karla. KR er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjá leiki en ÍBV er með sjö stig.
Meira