Innlent

Betra Sigtún á Vopnafirði

Sveinn Arnarsson skrifar
Kári Gautason, formaður Betra Sigtúns
Kári Gautason, formaður Betra Sigtúns
Nýtt framboð er í burðarliðnum á Vopnafirði. Framboðið samanstendur af ungu fólki og ber nafnið „Betra Sigtún“. Ætlar framboðið að bjóða fram undir listabókstafnum Ð.

Kári Gautason er formaður Betra Sigtúns. Hann hugmyndina hafa komið fram af íbúum Sigtúns, sem er minnsta gata Vopnafjarðar, um að gera eitthvað gott fyrir götuna, sem er hvorki malbikuð, upplýst né mokuð reglulega að vetrum.

„Svo vatt þetta upp á sig og við erum framboð ungs fólks sem ætlar að koma ungu fólki að ákvarðanatöku í sveitarfélaginu. Það skiptir máli afð fá heimamenn aftur heim og ætlum við að berjast fyrir því. All flestir sem koma að framboðinu eru 20-35 ára svo við erum að einhverju leyti framboð ungs fólks“ segir Kári Gautason.

„Við stefnum á að fá tvo til þrjá fulltrúa að loknum sveitarstjórnarkosningum. Við viljum hafa áhrif og það gerist ekki nema við fáum fólk í sveitarstjórn. Við teljum okkur hafa margt fram að færa og viljum berjast fyrir bættum lífskjörum íbúa og reyna að laða að fleira fólk í bæinn“.



Stefán Grímur Rafnsson er íbúi í Sigtúni 4, umræddri götu og jafnframt oddviti framboðsins. „Þetta byrjaði sem hálfgert grín eiginlega, að ef við vildum láta gera eitthvað fyrir götuna væri það eina sem við gætum gert að fara sjálfir í framboð til sveitarstjórnar.“ 

„Það markmið er löngu horfið og sáum við fljótt að við höfum mikið annað fram að færa. Þá fengum við með okkur ungt fólk á Vopnafirði sem vildi bæta hag bæjarins og settum saman lista,“ segir Stefán Grímur.



Framboðið hefur sett upp heimasíðuna sigtun.is þar sem hægt er að glöggva sig betur á framboðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×