Skoðun

Betra og sanngjarnara

Hanna Katrín Friðriksson og Jón Steindór Valdimarsson skrifar
Enginn á að þurfa að hugsa sig tvisvar um áður en leitað er eftir læknis- eða heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar. Það er með öllu ólíðandi að fólk sem greinist með illvígan sjúkdóm eða þarf á mikilli þjónustu að halda geti ekki notið viðeigandi meðferðar án þess að það færi fjárhag heimilisins úr skorðum.

Viðreisn vill endurskoða greiðsluþátttöku almennings með það fyrir augum að koma í veg fyrir að fólk veigri sér við að leita sér nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar sem það ræður illa við.

Innviðir heilbrigðiskerfisins eru ekki nægilega traustir. Víða þarf að endurbæta og endurbyggja. Viðreisn leggur áherslu á að ljúka framkvæmdum við Landsspítalann við Hringbraut á næstu fimm árum. Það er stór og mikilvægur þáttur í því að hægt sé að veita fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Það er ekki nóg að endurskoða greiðsluþátttöku og reisa nýjan Landsspítala. Leggja þarf mikla áherslu á að bæta þjónustu okkar við aldraða, allt frá heimaþjónustu til hjúkrunarheimila.

Heilsugæsluna þarf að bæta. Þar er biðtími víða alltof langur og fólk neyðist eða freistast til þess að nota úrræði, s.s. heimsókn á slysamóttökur spítala eða til sérfræðinga, sem eru dýrari bæði fyrir sjúklingana og ríkið.

Það er nauðsynlegt að vinna á biðlistum sem víða eru allt of langir í heilbrigðiskerfinu okkar, bregðast við manneklu á meðal fagstétta og efla sérhæfða þjónustu á heilbrigðisstofnunum víða um land. Þar leikur rafræn samtengd sjúkraskrá stórt hlutverk sem og nauðsynleg fjárfesting í tækjum og búnaði.

Viðreisn vill að árið 2020 verði útgjöld til heilbrigðismála 40 milljörðum hærri á föstu verðlagi en árið 2016.

Það er hins vegar óábyrgt að tala um úrbætur í heilbrigðis- og öldrunarþjónustu án þess að vita eða leggja fram áætlanir um hvernig á að fjármagna þær. Viðreisn er með skýra stefnu um hvernig þetta er hægt.

Viðreisn getur staðið við stóru orðin og setur heilbrigðis- og öldrunarmál í forgang. 




Skoðun

Sjá meira


×