Tónlist

Bestu og verstu plötuumslög ársins

.
Eins og venja er um þetta leyti árs leitaði Fréttablaðið til hóps valinkunnra andans manna og kvenna til að velta fyrir sér kostum og göllum við umslög íslenskra hljómplatna sem komið hafa út á árinu.





Ojba Rasta með besta plötuumslagið
 
Bestu umslög ársins 2013



1. sæti

Ojba Rasta – Einhvern veginn svona



„Vel heppnað í alla staði. Grípandi list sem fær mann til að skoða. Bravó.“ - María Lilja Þrastardóttir



„Margslunginn og sýrður ævintýraheimur í óendanlegum, stjörnufylltum himingeimi. Endalaust gaman að skoða. Skerpir glæsilega á „speisuðu döbbi“, tyrkneskri sýru og fleiru spennandi í hljóðheimi Ojba Rasta.“ - Jens Guð



„Ragnar Fjalar Lárusson er að stimpla sig inn sem fjölhæfur og afkastamikill listamaður með litríkt stílbragð. Hér leikur hann sér fram og aftur með myndmálið; hinn innri mann, heilahvelin, náttúruna, alheiminn og sínusbylgjur. Passar eins og flís við rassinn á Ojba Rasta.“ - Arnór Bogason



„Eins og í fyrra er boðið upp á frábært umslag á plötu Ojba Rasta. Í sama „80‘s overkill“-anda. Virkilega flott. Tvö lokuð augu og það þriðja galopið á enni er líka alltaf „winner“ hjá mér. - Jóhann Alfreð Kristinsson

2. sæti

Drangar - Drangar



„Hér er mjög vel hugað að innihaldi. Innblásturinn er í takt við tónlistina og því er fylgt vel eftir í meðhöndlun leturs, efnisvali og litapallettu. Handverkið og nostrið nýtur sín vel og gripurinn er afskaplega eigulegur. Mig langar mikið frekar til að opna þetta umslag en skrolla eftir plötunni í Spotify.“ - Kristín Agnarsdóttir



„Skemmtilega einfalt og svolítið út úr kú fyrir testósteróntröllin í hljómsveitinni. Hraundranga-leysið í smekklegri hönnuninni var góð ákvörðun.“ - Sunna Valgerðardóttir



„Ég væri til í að ramma þetta umslag inn og hafa það uppi á vegg hjá mér. Ég get horft á það endalaust. Hið fullkomna umslag sem er ekki bara konfekt fyrir augað heldur lýsir tónlistinni líka svo vel. Frábært samspil tveggja listforma.“ - Lilja Katrín Gunnarsdóttir

3. sæti

Dj flugvél og geimskip - Glamúr í geimnum



„Glitrandi og hressandi umslag sem lýsir samtímanum vel.“ - Ólafía Svansdóttir



„Flott mynd og fríkað fótósjopp. Það þarf víst að kunna reglurnar til þess að brjóta þær. Þetta er eins og remix af Silvíu Nótt – Goldmine-umslaginu sem kom út í góðærinu. Krúttlega kærulaust … eins og tónlistin.“ - Jói Kjartans





4. sæti

Dr. Gunni og vinir hans - Alheimurinn!



„Stórkostlegt, litfagurt, lifandi og fyndið umslag sem ungir og aldnir munu hrifsa til sín hugsunarlaust úr plöturekkunum fyrir jólin. Plata með svona útliti getur ekki verið annað en sú skemmtilegasta í öllum heiminum.“ - Kristinn Pálsson



„Eitt orð: skemmtilegt.“ - Guðmundur Pétursson







5. sæti

Emilíana Torrini - Tookah



„Skemmtilegt og galsafengið listaverk. Vangasvipur í svart-hvítri spegilmynd skreyttur með einföldum formum í möttum lit. Úr fjarlægð (eða með því að píra augun) birtist feitlagið andlit.“ - Jens Guð



„Það er eitthvað svo dásamlega furðulegt við þetta umslag. Ég doka alltaf við þetta eins og Sledgehammer-myndband Peters Gabriel eða umslag Alan Parsons Project við Eye in the Sky-smáskífuna. Skrýtið á mjög jákvæðan hátt. Eins og flest sem er skrýtið reyndar.“ - Kristín Agnarsdóttir



Verstu umslög ársins 2013



1. sæti

Steinar - Beginning



„Af hverju er þessi maður í þessari stellingu og með þennan svip? Er eitthvað að honum? Er honum illt?“ - Stígur Helgason



„Svipurinn er svolítið eins og hann sé við það að átta sig á því að maðurinn sem hann var að opna fyrir er handrukkari.“ - Ölvir Gíslason

„Bjóst við meiru frá vonarstjörnu Íslands í poppinu. Hugmyndasnautt og tilgerðarlegt í alla staði. Eins og tískuþáttur í menntaskólablaði.“ - Álfrún Pálsdóttir



„Eftir fyrstu hlustun virðist sem svo að það hafi verið hent í plötu út af einum hittara. Mér sýnist einmitt líka hafa verið bara hent í umslag. Mjög sorglegt þar sem Steinar er ungur og upprennandi og því verð ég reið þegar ég sé þetta umslag. Á þetta að gera eitthvað fyrir einhvern?“ - Lilja Katrín Gunnarsdóttir

2. sæti

Kaleo - Kaleo



„Einstaklega ósexí. Á að hafa klassískt yfirbragð en tekst það ekki og verður fyrir vikið óspennandi og tilgerðarlegt.“ María Lilja Þrastardóttir

„Gullblóm. Þetta er eins og bók og er mjög ljótt.“ - Guðmundur Pétursson







3. sæti.

Ólafur Arnalds - For Now I Am Winter



„Ólafur horfir fjarrænn út í tómið með íslensku náttúruna inni í sér. Allt mjög íslenskt og klisjukennt með smá snert af velgju.“ - Ólafía Svansdóttir



„Brimrótið er INNI Í honum. Ég skil. Djúpt. Eða eitthvað.“ - Stígur Helgason







4. sæti

Ólöf Arnalds - Sudden Elevation



„Þótti þetta í alvöru svona góð mynd að það þyrfti að nota hana fjórum sinnum? Þetta er eins og amma hafi komist í Photoshop.“ - Stígur Helgason



„Hugmyndin er óskiljanleg og hönnunin á ekkert skylt við titil plötunnar. Og þó að Ólöf sé vissulega fögur eru fjögur andlit í þessu tilviki þremur of mörg.“ - Sunna Valgerðardóttir





Ojba Rasta með besta plötuumslagið
 
5. sæti

Ýmsir flytjendur - Einnar nætur gaman með Sigga Hlö



„Ég efast ekki um að valið á „one hit wonder“-slögurum sé traust hjá Sigga. En undir titlinum Einnar nætur gaman og við undirtitilinn 57 sjóðheit lög undir einni sæng er mynd af Sigga þar sem ég veit ekki hvort hann ætli í mann eða langi í mann. Þetta er samt eiginlega uppáhaldsumslagið mitt líka.“ - Jóhann Alfreð Kristinsson



„Hreinræktaður óhugnaður. Þessi maður hefur ekkert gott í hyggju.“ - Ölvir Gíslason





Ojba Rasta með besta plötuumslagið
 
Umdeildasta umslagið 2013



Mammút - Komdu til mín svarta systir

Jafnmörgum þótti umslagið gott og slæmt.

„Gersamlega tryllt framsetning og útlitið svo órætt í allri sinni afstæðu fegurð. Myndin vekur umsvifalausa forvitni en samt er eins og maður vilji ekki vita hvað er að gerast á henni.“ - Kristinn Pálsson



„Eitthvað mjög óþægilegt við þessa mynd.“ - Álfrún Pálsdóttir



„Ég veit ekki almennilega hvað ég er að horfa á, en á einhvern pervertískan hátt líkar mér það.“ - Stígur Helgason



„Með furðulegri koverum sem ég hef séð. Leiðinlegt þar sem platan er svo fín. Reyndar fékk það mig til þess að taka plötuna upp og rýna framan á hana sem ég hefði alla jafna ekki gert. Mér sýndist þetta nefnilega vera einhvers konar vansköpuð kartafla að spíra.“ - María Lilja Þrastardóttir



Álitsgjafar:

Arnór Bogason, grafískur hönnuður

Álfrún Pálsdóttir, blaðamaður

Berti Andrésson, tónlistaráhugamaður

Guðmundur Pétursson, grafískur hönnuður

Jens Guð, grafískur hönnuður

Jóhann Alfreð Kristinsson, grínisti

Jói Kjartans, ljósmyndari

Kristinn Pálsson, tónlistaráhugamaður

Kristín Agnarsdóttir, grafískur hönnuður

Lilja Katrín Gunnarsdóttir, blaðamaður

María Lilja Þrastardóttir, fréttamaður

Ólafía Svansdóttir, bóksali

Stígur Helgason, blaðamaður

Sunna Valgerðardóttir, fréttamaður

Tryggvi Hilmarsson, grafískur hönnuður

Þórður Helgi Þórðarson, útvarpsmaður

Ölvir Gíslason, þýðandi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×