Fótbolti

Besti leikmaður Real Madrid er ekki Ronaldo eða Bale

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Modric er lykilmaður hjá Real Madrid.
Modric er lykilmaður hjá Real Madrid. vísir/getty
Gabi, miðjumaður Atletico Madrid, segir að besti leikmaður Real Madrid sé hvorki Cristiano Ronaldo eða Gareth Bale.

Atletico tekur á móti Real í borgarslag spænsku höfuborgarinnar á laugardagskvöld og telur að Luka Modric sé mikilvægari Real Madrid en stórstjörnunar Ronaldo og Bale.

Modric hefur verið tæpur vegna meiðsla og spilaði af þeim sökum aðeins í síðari hálfleik í leik Króatíu og Íslands í undankeppni HM 2018 á laugardag.

Sjálfur segir Króatinn að hann verði klár í slaginn á laugardag en það hefur þó ekki verið staðfest enn.

Sjá einnig: Modric var lykilskipting hjá þeim

„Madríd er að verja miklu til að koma sínum bestu leikmönnum í stand fyrir leikinn og það segir mikið um hvað þeir ætla sér að gera og hvernig þeir líta á okkur,“ sagði Gabi við spænska fjölmiðla.

Luka Modric þakkar Gylfa Þór Sigurðssyni fyrir leikinn.Vísir/Getty
„Hvað Modric varðar þá virðast þeir hafa náð að gera sinn besta leikmann leikfæran fyrir leikinn. Hann er eini leikmaður Real Madrid sem lætur liðið spila og gefur því jafnvægi. Við munum reyna að eiga svar við því.“

Annar leikmaður sem er tæpur fyrir helgina er franski sóknarmaðurinn Antoine Griezmann, leikmaður Atletico, en hann meiddist í leik Frakka og Svía á föstudag. Meiðsli hans eru ekki jafn alvarleg og óttast var í fyrstu og stefnir hann að því að ná leiknum.

Sjá einnig: Griezmann er ekki fótbrotinn

Griezmann hefur skorað sex mörk og lagt upp fjögur til viðbótar í tíu deildarleikjum Atletico Madrid á tímabilinu til þessa.

Atletico hefur þó tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum í deildinni og er dottið niður í fjórða sæti deildarinnar. Real Madrid hefur hins vegar ekki enn tapað leik á tímabilinu og á toppnum með 27 stig, sex meira en Atletico.

Viðureign Atletico og Real verður sýnd á Stöð 2 Sport á laugardagskvöld klukkan 19.40.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×