Matur

Besta súkkulaðikakan með Nutella smjörkremi

Eva Laufey skrifar
visir.is/evalaufey
Súkkulaðikaka með Nutella smjörkremi Ég slæ ekki hendinni á móti nýbakaðri súkkulaðiköku og ísköldu mjólkurglasi. Þegar ég var yngri var súkkulaðikaka í mínu eftirlæti og það hefur ekki breyst. Þessi uppskrift er ein sú besta að mínu mati og fékk ég hana hjá henni Eddu systur minni. Kremið setur svo punktinn yfir i-ið, ég veit ekki með ykkur en ég fæ ekki nóg af Nutella!

Súkkulaðibotnar

450 g hveiti

190 g sykur

3 egg

500 ml AB mjólk

90 g olía

6 msk kakó

2 tsk lyftiduft

1 tsk matarsódi

2 tsk vanilludropar eða sykur

Aðferð:

Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið tvö hringlaga bökunarform og leggið til hliðar. Þeytið öll hráefnin saman í nokkrar mínútur. Hellið deiginu í formin og bakið í 25 – 30 mínútur við 175°C. Hún er bökuð þegar prjóni sem stungið er í hana kemur hreinn út. Kælið kökuna og skreytið með ljúffengu súkkulaðikremi.

Nutella smjörkrem

240 g smjör, við stofuhita og skorið í teninga

500 g flórsykur

1 krukka Nutella

100 g brætt súkkulaði

1 tsk vanilludropar eða sykur

Aðferð:

Þeytið saman flórsykur og smjör þar til það er létt og ljóst. Bætið Nutella, bræddu súkkulaði og vanilla út í og þeytið vel saman. Leggið kökuna saman með kremi á milli. Þekjið  kökuna með súkkulaðikreminu og skreytið gjarnan með ferskum jarðarberjum. 


Tengdar fréttir

Veisla upp á franska vísu

Frönsk matargerð er með allra vinsælustu í heiminum enda ekki furða þar sem hver rétturinn á eftir öðrum er gómsætari. Eva Laufey eldaði sínar eftirlætis frönsku uppskriftir í þætti sínum Matargleði Evu sem sýndur er á fimmtudögum á Stöð 2.

Ítalski sjarmörinn

Eva Laufey deilir uppskrift af þekktasta eftirrétt Ítala, Tíramísú sem er afar vinsæll víða um heim.

Eva Laufey bakar gómsætar makkarónur

Matargleði Evu var undir frönskum áhrifum í síðasta þætti og bakaði Eva meðal annars þessar makkarónur sem gleðja bæði augað og bragðlaukana.

Laxasteik og laxaborgari með frönskum sætkartöflum

Eva Laufey bauð upp á lax á tvo vegu í þættinum Matargleði á Stöð 2 í gærkvöldi og ættu þessir réttir að henta vel þegar sest er að snæðingi í sólinni. Lax er hollur og góður fiskur sem passar vel hvort heldur sem er á grillið eða beint á pönnuna.

Kjúklingasalat Evu Laufeyjar

Fyrsti þáttur af nýrri sjónvarpsþáttaseríu Evu Laufeyjar Kjaran Hermannsdóttur fór í loftið í gær á Stöð 2. Í þáttunum fer Eva Laufey um víðan völl og eldar girnilegan mat fyrir öll tækifæri. Í þættinum bjó hún til girnilega hristinga, granóla og bráðholl.

Sushi að hætti Evu Laufeyjar

Lax er mikið notaður í japanskri matargerð og þá sérstaklega í sushi. Í síðasta þætti Matargleði Evu bjó hún til einfalda sushi rétti sem allir geta leikið eftir.

Fljótlegur kjúklingaréttur og súkkulaðimús

Eva Laufey töfraði fram einfalda og fljótlega rétti í þætti sínum Matargleði á Stöð 2 í gærkvöldi. Kjúklingarétturinn er tilvalinn fyrir nútímafjölskyldur á hlaupum. Pestóið í uppskriftinni er einnig hægt að nota á heimabakað brauð eða með öðrum réttum. Súkkulaðimúsin er einföld en gómsæt.

Eplabaka Evu Laufeyjar

Hér kemur uppskrift að ljúffengri eplaböku úr eldhúsinu hennar Evu á Stöð 2.

Þakklæti ofarlega í huga

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir er fyrir löngu orðin mataráhugamönnum og konum landsins kunn fyrir girnilegar og einfaldar uppskriftir á matarbloggi sínu. Í gær fór svo hennar önnur þáttasería í loftið á Stöð 2.

Bestu súkkulaðibitakökurnar

Eva Laufey bakaði þessar ómótstæðilegu smákökur í þætti sínu Matargleði Evu á Stöð 2.

Ofnbakaður lax að hætti Evu Laufeyjar

Lax er með því hollara sem við getum í okkur látið og er hann sannkölluð ofurfæða. Hægt er að matreiða lax á marga vegu og er hann sérstaklega bragðgóður þegar hann er bakaður í ofni.

Frönsk lauksúpa

Galdurinn við góða lauksúpu er að leyfa lauknum að krauma í smjörinu í dágóðan tíma. Hér er uppskrift að bragðmikilli lauksúpu sem Eva Laufey eldaði í þætti sínum, Matargleði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×