Sport

Besta fimleikafólk landsins í Halmstad í Svíþjóð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gerplustelpurnar Agnes Suto, Norma Dögg Róbertsdóttir og  Thelma Rut Hermannsdóttir eru allar í íslenska landsliðinu.
Gerplustelpurnar Agnes Suto, Norma Dögg Róbertsdóttir og Thelma Rut Hermannsdóttir eru allar í íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm
Íslenska landsliðið í áhaldafimleikum fór í morgun til Halmstad í Svíþjóð þar sem Ísland tekur þátt í Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum.

Ísland sendir fullskipuð lið bæði í drengja-, stúlkna-, kvenna- og karlaflokki eða alls tuttugu keppendur, fjóra þjálfara og fimm dómara.

Meðal keppenda eru Íslandsmeistararnir í fjölþraut, þau Norma Dögg Róbertsdóttir úr Gerplu og Bjarki Ásgeirsson úr Ármanni.

Gerpla á flesta keppendur í íslenska hópnum eða átta en sex Ármenningar eru í íslensku liðunum fjórum.

Hér fyrir neðan má sjá landslið Íslands á NM 2014:



Kvennalið

    Agnes Suto - Gerpla

    Hildur Ólafsdóttir - Fylkir

    Norma Dögg Róbertsdóttir - Gerpla

    Thelma Rut Hermannsdóttir - Gerpla

    Þórey Kristinsdóttir - Björk

Stúlknalið

    Andrea Rún Þorvaldsdóttir - Ármann

    Kristjana Ýr Kristinsdóttir - Björk

    Lilja Björk Ólafsdóttir - Keflavík

    Nanna Guðmundsdóttir - Grótta

    Nína María Guðnadóttir - Björk

Þjálfarar í verkefninu eru Berglind Pétursdóttir og Guðmundur Þór Brynjólfsson

Dómarar kvennamegin eru þær Sandra Árnadóttir og Þorbjörg Gísladóttir.

Karlalið

    Bjarki Ásgeirsson - Ármann

    Jón Sigurður Gunnarsson - Ármann

    Hróbjartur Pálmar Hilmarsson - Gerpla

    Pálmi Rafn Steindórsson - Gerpla

    Sigurður Andrés Sigurðsson - Ármann

Drengjalið

    Adam Elí Ingusson - Ármann

    Aron Freyr Axelsson - Ármann

    Eyþór Örn Baldursson - Gerpla

    Hrannar Jónsson - Gerpla

    Stefán Ingvarsson - Björk

Þjálfarar í verkefninu eru Guillermo Alvarez og Róbert Kristmannsson.

Dómarar karlamegin eru þeir Björn M Tómasson, Daði Snær Pálsson og Andri Wilberg Orrason.


Tengdar fréttir

Eins og að fella sig við það að labba

Thelmu Rut Hermannsdóttur tókst ekki að bæta met gamla þjálfara síns. Bjarki Ásgeirsson og Norma Dögg Róbertsdóttir urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn.

Bjarki og Norma Dögg Íslandsmeistarar í fjölþraut

Bjarki Ásgeirsson úr Ármanni og Norma Dögg Róbertsdóttir úr Gerplu urðu í dag Íslandsmeistarar í fjölþraut á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum en bæði voru þau að vinna titilinn í fyrsta sinn.

Jón Sigurður og Thelma Rut unnu flest gull í dag

Ármenningar og Gerplukonur voru í aðalhlutverki í keppni á einstökum áhöldum á Íslandsmeistaramótinu í áhaldafimleikum sem lauk í Ármannsheimilinu í dag. Jón Sigurður Gunnarsson úr Ármanni og Thelma Rut Hermannsdóttir úr Gerplu unnu flest áhöld í dag.

Þrefalt hjá Gerplukonum í gær - myndir

Gerpla hélt áfram sigurgöngu sinni í fjölþraut kvenna á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum í gær þegar Gerpla átti þrjár á palli í kvennaflokki. Gerpla hefur nú átt Íslandsmeistara kvenna í fimleikum í ellefu ár í röð.

Gerplustelpurnar góðar vinkonur þrátt fyrir mikla samkeppni

Gerpla vann alla fimm Íslandsmeistaratitlana í boði í kvennaflokki á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem fór fram í Ármannsheimilinu um helgina. Norma Dögg Róbertsdóttir vann fjölþrautina í gær og hún og liðsfélagar hennar Thelma Rut Hermannsdóttir og Agnes Suto skiptu svo með sér gullverðlaunum á einstökum áhöldum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×