Glamour

Best klæddu stjörnurnar í vikunni

Ritstjórn skrifar
Natalie Portman var glæsileg í Dior dragt á dögunum.
Natalie Portman var glæsileg í Dior dragt á dögunum. Myndir/Getty
Nú þegar þessari viku fer senn að ljúka er gott að líta yfir það sem stjörnurnar klæddust. Það var nóg um að vera á rauðu dreglunum á hinum ýmsu frumsýningum og öðrum viðburðum. 

Það er greinilegt að stjörnurnar eru byrjaðar að undirbúa sig fyrir haustið miðað við litapalletturnar. Ekki er mikið um að vera að klæða sig í létt sumarföt heldur er meira um hlýrri efni og snið sem hylja meira. 

Zoe Saldana glæsileg í áhugaverðum kjól.
Elle Fanning var í ansi skemmtilegum Marc Jacobs kjól í vikunni.
Fyrirsætan Karlie Kloss kom úr flugi í flottum háum og víðum buxum við langerma magabol.
Bradley var flottur í bláum jakkafötum á frumsýningu í vikunni.
Natalie Portman má alveg vera tvisvar sinnum á þessum lista. Enn og aftur glæsileg í Dior.
Rihanna lauk nýverið við tónleikaferðalag sitt um Evrópu. Tónleikabúningar hennar hafa vakið mikla athygli fyrir að vera öðruvísi.





×