Glamour

Best klæddu konurnar á VMA hátíðinni

Ritstjórn skrifar
Naomi Campbell var ein af þeim flottustu á hvíta dreglinum.
Naomi Campbell var ein af þeim flottustu á hvíta dreglinum. Myndir/Getty
Í nótt fór fram verðlaunahátíðin MTV Video Music Awards þar sem allar helstu stjörnurnar úr tónlistarlífinu klæddu sig upp í sitt fínasta púss og létu mynda sig á rauða dreglinum. 

Tískan á dreglinum var ansi fjölbreytt en samt sem áður voru gegnsæ efni og flegin snið áberandi.

Glamour hefur tekið saman lista yfir best klæddu konurnar á hátíðinni eins og sjá má hér fyrir neðan.

Alicia Keys mætti ómáluð og fersk ásamt eiginmanni sínum, Svizz Beats, í fallegum munstruðum kjól og með hárið tekið upp. Skemmtileg tilbreyting.
Ariana Grande var glæsileg í toppi og buxum frá Alexander Wang.
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell bar af í þessum fölgræna kjól með rauðar glitrandi varir.
Kim Kardashian var kynæsandi í svörtum stuttum kjól með blautt hárið.
Hailey Baldwin var í skemmtilegum samfesting sem vakti mikla lukku.
Britney Spears var ekkert að taka alltof miklar áhættur en samt sem áður hitti hún naglann í höfuðið og var glæsileg sem aldrei fyrr.
R&B söngkonan Tinashe var í afslöppuðu en samt elegant dressi. Það kemur einstaklega vel út hjá henni, sérstaklega með hárið tekið upp.
Mæðgurnar Beyonce og Blue Ivy báru af á dreglinum góða. Beyoncé klæddist ljósbláum fjaðrakjól frá Maison Francesco Scognamiglio.Myndir/Getty





×