Glamour

Best klæddu karlmenn vikunnar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Þessir karlmenn voru þeir best klæddu síðustu vikur að mati Glamour, þannig ef þú hefur eitthvað tilefni framundan eða vantar smá hugmyndir þá er gott að líta til þessara karlmanna.

Pharrell Williams
Pharrell Williams er nánast alltaf vel klæddur og er mikill töffari. Þarna stígur hann út fyrir rammann og klæðist síðum gallajakka við gallabuxur í allt öðrum tón. Kemur vel út. 

Zayn Malik
Zayn Malik er ekki hræddur við að prófa sig áfram, og hér er hann í lit sem þykir oftast mjög ljótur, einhverskonar græn-gulur litur. En þetta virkar hjá Zayn. 

David Beckham
David Beckham kann svo sannarlega að klæða sig eins og sést hér. Greinilega í miklum kulda í New York, þá er hann í mörgum lögum af fatnaði. Þetta dress má alveg leika eftir. 

Harris Dickinson
Litasamsetningin hérna er mjög flott og áhugaverð. Dökkgrár jakki, ljósgráar buxur, dökkgræn peysa og svo setja hvítu Converse-skórnir punktinn yfir i-ið. 

Nick Robinson
Stílhreint en flott, þar sem grái jakkinn gerir mikið fyrir heildarútlitið. 

Nick Robinson
Það eru ekki margir sem myndu líta vel út í þessu dressi en það tekst vel til hér. Brúnn leðurjakki er klassísk flík, en til þess að vera flottur verður leðrið að vera úr miklum gæðum. 

Jacob Latimore
Þetta fjöruga og litríka dress er einmitt eins og er mikið í tísku núna. Ekki vera hræddur við að blanda litum saman, það er nú einu sinni að koma vor. 

Timothee Chalamet
Hvít skyrta eða jakki í yfirstærð við svartar buxur og hvíta strigaskó. Einfalt en flott. 






×