Tíska og hönnun

Best klæddi maður í heimi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
1. sæti - Justin Timberlake.
1. sæti - Justin Timberlake. Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn og verðandi Íslandsvinurinn Justin Timberlake trónir á toppnum yfir best klæddu menn heimsins að mati sjónvarpsstöðvarinnar Fashion One Television.

Justin hendir knattspyrnugoðinu David Bekcham niður í annað sæti en í því þriðja er leikarinn Ryan Gosling.

Í fjórða sæti er One Direction-söngvarinn Harry Styles og í því fimmta er tónlistarmaðurinn Pharrell Williams.

Fatahönnuðurinn Tom Ford er í sjötta sæti, leikarinn James Franco í sjöunda, fyrirsætan David Gandy í áttuna, tónlistarmaðurinn Kanye West í níunda og leikarinn Bradley Cooper í því tíunda.

2. sæti - David Beckham.
3. sæti - Ryan Gosling.
4. sæti - Harry Styles.
5. sæti - Pharrell Williams.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×