Innlent

Best að hafa glugga lokaða þegar mesta mengunin er

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/GVA
„Það hefur svona einn og einn sem er að koma hér á stofuna til okkar kvartað undan óþægindum í augum og hálsi. Það hefur ekki verið mikið um að fólk hafi komið sérstaklega út af þessum einkennum, en kannski nefnt það í tengslum við önnur mál,“ segir Gunnlaugur Sigurjónsson, heimilislæknir á heilsugæslustöðinni í Árbæ. Hann ræddi um mengunina frá gosinu í Holuhrauni í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

„Það er náttúrlega að ganga leiðindaflensa eða veirupest og margir að fá berkjubólgu. Maður getur velt fyrir sér hvort að það sé meira um það út af þessu mengunarskýi sem liggur yfir. Allavega heyrir maður á sumum að þeim finnist þeir verða þyngri þegar mengunarskýið er hvað þéttast yfir borginni.“

Gunnlaugur sagði að ef brennisteinsdíoxíð væri yfir 600 grömm í rúmmetra geti það haft áhrif á þá sem eru með viðkvæm öndunarfæri. Fari það yfir þrjú þúsund grömm geti það haft áhrif á fullfrískt fólk.

„Það eru fyrst og fremst þeir sem eru með undirliggjandi sjúkdóm í öndunarfærum. Börn með astma, eldra fólk með króníska loftvegasjúkdóma. Það liggur meira á því.“

Gunnlaugur segir ráðlegt að vera með glugga lokaða þegar mengunin er mest.

„Eftir því sem mér skilst hefur mengunin hér á höfuðborgarsvæðinu verið um 200 til eitt þúsund síðustu daga. Þegar þetta er farið að kitla í eitt þúsund grömm held ég að skynsamlegt sé að vera með gluggana lokaða.“

Hann segir að búast megi við fjölgun öndunarfæraeinkenna haldi mengunin áfram. Reynslan frá Austurlandi, þar sem vandamálið hafi verið meira, hefur sala astmalyfja aukist um 50 prósent.

„Það má búast við að það verði einhver áhrif hér þó það verði aldrei jafn mikið og nær eldstöðinni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×