Íslenski boltinn

Berserkir hlaupa fyrir vin sinn sem tók eigið líf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Berserkir eru í 2. sæti í A-riðli 4. deildar.
Berserkir eru í 2. sæti í A-riðli 4. deildar. mynd/berserkir
Berserkir úr Fossvoginum ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu og safna áheitum fyrir Útmeð'a.

Útmeð'a er átaks- og forvarnarverkefni gegn sjálfsvígum ungra karla á Íslandi.

Málefnið snertir Berserki en Daníel Freyr Sigurðarson, leikmaður liðsins og góður félagi, stytti sér aldur í september í fyrra.

Berserkir ætla að heiðra minningu Daníels með því að hlaupa til styrktar Útmeð'a í Reykjavíkurmaraþoninu 20. ágúst og leggja þar með sitt af mörkum til þess að fækka sjálfsvígum ungra karla á Íslandi.

Heita má á Berserki í Reykjavíkurmaraþoninu með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×