Bílar

Bernie Ecclestone hættur sem forstjóri Formúlu 1

Finnur Thorlacius skrifar
Bernie Ecclestone.
Bernie Ecclestone.
Æðstiprestur Formúlu 1 til margra ára, Bernie Ecclestone, hefur látið af forstjórastóli þar á bæ. Hann verður einskonar heiðursfélagaforseti Formúlunnar en veit sjálfur ekki hvað það felur í sér. Hann hefur því ekki lengur tögl og haldir í fyrirtækinu og hefur Liberty Media´s Chase Carey tekið við formennskunni og öllum helstu ákvörðunum sem teknar verða innan fyrirtækisins.

Þessi breyting verður formlega tilkynnt næsta þriðjudag og þá verður einnig tilkynnt um stór hlutverk Ross Brown og Sean Bratches við yfirstjórn Formúlu 1. Þeir munu hafa með höndum ákvarðanir er varða regluverk íþróttarinnar og markaðsmál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×