Handbolti

Berlínarrefirnir fengu á baukinn

Dagur Sigurðsson, þjálfari Berlin.
Dagur Sigurðsson, þjálfari Berlin. vísir/getty
Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin voru ekki klárir í mikilvægan leik í kvöld.

Þá sótti Berlin lið Melsungen heim. Melsungen í sjötta sæti fyrir leikinn en Berlin í því sjöunda. Munaði aðeins einu stigi á liðunum fyrir leikinn.

Það er skemmst frá því að segja að Melsungen pakkaði Berlin saman og vann að lokum stórsigur, 31-24. Staðan í hálfleik var 20-11.

Marino Maric markahæstur hjá Melsungen með fjögur mörk en Fabian Weide atkvæðamestur í liði Berlin með sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×