Viðskipti erlent

Berlínarbúum bannað að leigja út íbúðir sínar á Airbnb

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Branderburgarhliðið í Berlín, einnum vinsælasta áfangastað ferðamanna í Evrópu.
Branderburgarhliðið í Berlín, einnum vinsælasta áfangastað ferðamanna í Evrópu. vísir/getty
Fólk sem verður uppvíst að því að leigja út íbúðir sínar í Berlín á síðum á borð við Airbnb á von á háum sektum frá og með gærdeginum.

Aðgerðirnar eiga að hjálpa borgarbúum að leigja í þýsku höfuðborginni þar sem leiga hefur hækkað um rúmlega helming frá 2009. Telja yfirvöld að íbúðarleiga til ferðamanna skerði verulega aðgengi borgarbúa að húsnæði þar sem færri íbúðir eru í boði og verðið mun hærra. Samkvæmt löggjöfinni mega Berlínarbúar þó ennþá leigja stök herbergi í íbúðum sínum til ferðamanna.

Lögin voru samþykkt árið 2014 en tóku ekki gildi fyrr en nú á laugardaginn þegar tveggja ára aðlögunartímabili vegna laganna lauk. Þeir sem brjóta gegn löggjöfinni geta átt von á sekt upp á allt að 100 þúsund evrur, eða sem samsvarar 14 milljónum króna.  

Andreas Giesel, yfirmaður skipulagsmála í Berlín, segir breytinguna nauðsynlega þar sem húsnæðisskortur sé í borginni.

Berlín er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna í Evrópu. Á seinasta ári voru gistinætur þar 30,2 milljónir en þar af voru rúmlega sex milljónir nótta í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×