Lífið

Berglind Jónsdóttir leikur Önnu Björnsdóttur í Johnny Depp mynd um James Bulger

Birgir Olgeirsson skrifar
Johnny Depp fer með hlutverk James Whitey Bulger í kvikmyndinni Black Mass. Það var Anna Björnsdóttir sem veitti ábendingu árið 2011 sem leiddi til handtöku Bulgers en Berglind Jónsdóttir mun fara með hlutverk Önnu í kvikmyndinni Black Mass.
Johnny Depp fer með hlutverk James Whitey Bulger í kvikmyndinni Black Mass. Það var Anna Björnsdóttir sem veitti ábendingu árið 2011 sem leiddi til handtöku Bulgers en Berglind Jónsdóttir mun fara með hlutverk Önnu í kvikmyndinni Black Mass. Vísir/YouTube/Imdb

Kvikmyndin Black Mass er væntanleg í kvikmyndahús í september en hún segir frá lífi bandaríska glæpamannsins James WhiteyBulger. Það er enginn annar en JohnnyDepp sem fer með hlutverk þessa alræmda glæpamanns og hefur hann nú þegar verið orðaður við Óskarsverðlaunin fyrir frammistöðu sína í hlutverki Bulgers.

Allavega þykir erlendum miðlum hann vera nógu ófrýnilegur að sjá til að heilla Óskarsverðlaunaakademíuna.

Sögu Bulger þekkja margir en hann var einn alræmdasti glæpamaður Bandaríkjanna um margra ára skeið. Á seinni stigum ferils síns gerðist hann uppljóstrari fyrir bandarísku alríkislögreglunnar FBI til að koma í veg fyrir uppgang ítalsks glæpagengis á svæði hans í Boston. Er hann sagður hafa notið ákveðinnar friðhelgi frá yfirvöldum á meðan hann veitti upplýsingarnar en í desember árið 1994 fór hann í felur eftir að hann komst að því að ákæra ætti hann fyrir morð á nítján manneskjum.

Á þeim tíma var hann tólf ár ofarlega á lista FBI yfir eftirlýsta menn og um tíma var hann næstur á eftir Osamabinladen.

James Whitey Bulger

22. júní árið 2011 var hann handtekinn við heimili sitt í SantaMonica í Kaliforníu.

Yfirvöld höfðu þá fengið ábendingu frá Önnu Björnsdóttur um veru Bulgers í SantaMonica. Var Anna stödd í Reykjavík þegar hún hafði samband við FBI  eftir að hafa séð mynd af Bulger á bandarísku fréttastöðinni CNN og þekkti kauða strax. Hún hafði marg oft séð hann áður en hann var nágranni hennar í SantaMonicu.

Anna fékk tvær milljónir dollara, eða sem nemur 272 milljónum íslenskra króna í dag, fyrir ábendinguna en hún kemur einmitt fyrir í þessari kvikmynd um ævi Bulgers.

Í Black Mass er Anna leikin af íslensku leikkonunni Berglindi Jónsdóttur sem hefur meðal annars verið statisti í myndum á borð við Dumb andDumberto, TheHungerGames: CatchingFire og JayneMansfield´scar. Þá lék hún einnig sænskan embættismann í TheGoodLie.

Hún hefur einnig komið fyrir í sjónvarpsþáttum ytra og auglýsingum en á meðal þess sem kemur fyrir á ferilskrá hennar á kvikmyndavef IMdB.com þá lék hún einnig í auglýsingu fyrir SPRON á Íslandi.

Í leikhúsi hefur hún komið fyrir í LaBoheme í norsku óperunni og Töfraflautunni í þeirri íslensku.


Tengdar fréttir

Fríða kom upp um „dýrið“

"Það er ótrúlegt að það hafi þurft fegurðardrottningu frá Íslandi til þess að hafa uppi á einum hættulegasta glæpamanni Bandaríkjanna," segir rannsóknarblaðamaður Boston Globe um mál Whitey Bulger sem var handtekinn eftir ábendingu frá Önnu Björnsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×