Íslenski boltinn

Berglind Björg með þrennu í öðrum leiknum í röð | Fylkir áfram í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir. Vísir/Vilhelm
Pepsi-deildarlið Fylkis varð í kvöld fyrsta liðið til að komast í undanúrslit Borgunarbikars kvenna eftir 4-0 sigur á 1. deildarliði Grindavíkur á Fylkisvellinum.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir er heldur betur í markastuði þessa dagana en hún skoraði  þrjú mörk í kvöld og var líka með þrennu þegar Fylkir vann Aftureldingu í síðasta leik liðsins í Pepsi-deildinni.

Berglind Björg skoraði öll mörkin sína á fyrstu 35 mínútum leiksins en Hulda Hrund Arnarsdóttir innsiglaði síðan sigurinn á 56. mínútu.

Þetta er þriðja árið í röð sem Fylkisstelpurnar komast í undanúrslitin í bikarnum en þær komust þangað líka 2009 og 2011. Kvennalið Fylkis hefur hinsvegar aldrei komist alla leið í bikarúrslitaleikinn.

Aðrir leikir í átta liða úrslitum Borgunarbikars kvenna eru ÍBV-Selfoss (á morgun), Stjarnan-Þór/KA (á morgun) og Valur - KR (11. júlí).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×