Handbolti

Bergischer tapaði með einu á heimavelli

Björgvin Páll stóð vaktina í marki Bergischer.
Björgvin Páll stóð vaktina í marki Bergischer. vísir/getty
Bergischer, lið þeirra Björgvins Páls Gústavsson og Arnórs Þórs Gunnarsson, tók á móti Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Melsungen fór með sigur af hólmi, 29-28.

Arnór Þór skoraði 4 mörk, þar af 2 úr vítaskotum. Björgvin Páll stóð vaktina með sóma í marki Bergischer. Bergischer var tveimur mörkum yfir, 26-24, þegar átta mínútur voru eftir en glutraði forskrotinu niður á síðustu mínútunum og varð að sætta sig við annað tapið í röð.

Bergischer er í 13. sæti þegar ein umferð er eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×