Innlent

Berbinn sendur aftur til Noregs

Þorgeir Helgason skrifar
Hælisleitandinn í Hjallakirkju.
Hælisleitandinn í Hjallakirkju. vísir/vilhelm
„Ég vil bara fá að vinna og borga mína skatta, í öryggi og friði. Ég vil vera gott fordæmi fyrir aðra innflytjendur,“ segir hælisleitandinn sem var sendur aftur til Íslands frá Noregi á miðvikudag.

Maðurinn verður sendur á ný til Noregs í næstu viku. Þetta kom fram í máli Þorsteins Gunnarssonar, forstöðumanns Útlendingastofnunar, í kvöldfréttum á Stöð 2 í gær.

Ástæðu þess að maðurinn var sendur til baka frá Noregi má rekja til samskiptaklúðurs Útlendingastofnunar og norsku útlendingastofnunarinnar.

Maðurinn, sem vill ekki koma fram undir nafni af ótta við Útlendingastofnun, hefur dvalið í gistiskýli við Bæjarhraun í Hafnar­firði frá því hann kom aftur til Íslands.

Maðurinn, sem er Berbi, segist hafa verið á vergangi í fimm ár. Eftir að hafa dvalið í gistiskýli í Noregi í rúm fjögur ár fékk hann að vita að beiðni hans um dvalarleyfi hefði verið hafnað. Norsk yfirvöld hafi þá gert honum ljóst að hann yrði að yfirgefa landið innan tveggja vikna. Hélt hann því til Íslands síðasta sumar.

Hingað kominn dvaldi Berbinn fyrst í gistiskýli í Hafnarfirði en flutti síðan í húsakynni á vegum Reykjavíkurborgar. Um miðjan síðasta vetur var honum gert að yfirgefa húsnæðið eftir að upp komast að hann hafði leyft vini að gista hjá sér.

„Hvað átti ég að gera? Vinur minn var á götunni og hefði dáið úr kulda. Auðvitað leyfði ég honum að gista hjá mér,“ segir hælisleitandinn og segir að sér hafi verið vísað í gistiskýli við Grensásveg. Dvölin þar hafi verið hræðileg. Húsakynnin vöktuð með mörgum myndavélum og öryggisverðir sífellt á ferðinni. Ekki hafi verið nokkur einasta leið að eiga sér einkalíf.

Berbar, sem búa víðs vegar um Norður-Afríku, hafa mætt mótstöðu í Marokkó. Maðurinn eyddi æskuárunum á munaðarleysingjahæli. Hann segist hafa upplifað mikla hættu þegar hann náði fullorðinsaldri og þess vegna flúði hann.

Að sögn Berbans hefur hann margsinnis óskað eftir viðtali hjá Útlendingastofnun á meðan mál hans var til meðferðar. Þeirri ósk hafi ávallt verið hafnað. Þá sé staðan sú að vegna þess að máli hans sé lokið af hálfu norskra stjórnvalda verði hann að öllum líkindum sendur frá Noregi aftur til Marokkó.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×