Lífið

Bera bragð villtrar náttúru

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Grafnar gæsabringur á stökkum faltbökum með sýrðum villisveppum og hvannarkapersi.
Grafnar gæsabringur á stökkum faltbökum með sýrðum villisveppum og hvannarkapersi. Vísir/Eyþór Árnason
„Ég geri dálítið að því að veiða, bæði á stöng og með byssu. Það sem heillar mig mest við það er að vera með í öllu ferlinu þar til veiðin er komin á disk,“ segir Steinar Sveinsson, yfirkokkur á Mat og drykk á Grandagarði. Sá staður er þekktur fyrir að nýta íslenskt hráefni sem mest.



Steinar nostrar við snitturnar.


Steinar greip fugl úr eigin afla og gróf bringurnar sem hér birtast á mynd ofan á stökkum flatkökum með sýrðum villisveppum og hvannarkapersi.





Þurrkaðir, íslenskir villisveppir eru alveg frábærir að mati Steinars. Vísir/Anton Brink
„Gæsabringur eru flott hráefni, en þær eru misjafnlega seigar eftir aldri fuglanna. Besta trikkið í bókinni er að skera þær í þunnar sneiðar. Það er líka betra að grafa þær en steikja ef maður er ekki klár á aldrinum,“ segir hann. „Þessar bringur gróf ég á hefðbundinn hátt í salti og sykri við stofuhita í nokkra klukkutíma. Síðan skolaði ég þær og velti þeim upp úr hjúp, þannig kemur kryddbragðið. Þá er gott að setja þær í augnablik inn í kæli og svo eru þær tilbúnar til niðurskurðar.“





Hvannarfræ eru bæði holl og gefa sérstakan keim. Þau er hægt að kaupa í heilsubúðum.Mynd/Gun
Hann vekur athygli á að sýrðu villisveppirnir sem eru ofan á gæsasnittunum þurfi að liggja í leginum í kæliskáp í sólarhring og hvannarkapersið þurfi einn til tvo sólarhringa við stofuhita til að ná rétta bragðinu.





Steinar er yfirkokkur á Mat og drykk.Vísir/Eyþór
Steinar kveðst hafa farið í veiðiferð um daginn en séð lítið af fugli. „Þá tíndi ég bara lerkisveppi og bláber í staðinn,“ lýsir hann. „Þurrkaðir íslenskir villisveppir eru alveg frábærir.“ 

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. október 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×