Lífið

Ber að ofan á Instagram

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirsætan og leikkonan Emily Ratajkowski er ekki feimin og birtir djarfa mynd af sér á Instagram-síðu sinni.

Á myndinni er Emily ber að ofan en heldur fyrir brjóstin með hægri hendinni og lætur glitta í undirföt frá Calvin Klein.

Emily leikur eitt af hlutverkunum í myndinni Gone Girl sem nýtur gríðarlegra vinsælda um þessar mundir en margir muna einnig eftir henni úr myndbandi við lagið Blurred Lines með Robin Thicke sem var afar umdeilt.



Happy to be back in NYC! Another CK back by popular demand.

A photo posted by Emily Ratajkowski (@emrata) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×