Lífið

Ber að ofan á Broadway

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Neil Patrick Harris, sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum How I Met Your Mother, fer á kostum í sýningunni Hedwig And The Angry Inch sem var frumsýnd á Broadway í New York í gærkvöldi.

Kærasti Neils, David Burtka, var meðal frumsýningargesta og studdi sinn mann enda var hann gjörsamlega frábær á sviðinu samkvæmt dómum um sýninguna.

Neil leikur aðalhlutverkið á móti Lenu Hall en leikstjórn er í höndum Michael Mayer.

Magnaður.
Ástfangnir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×