Bílar

Benz selur Tesla bréfin

Finnur Thorlacius skrifar
Tesla Model S og Mercedes Benz S-Class.
Tesla Model S og Mercedes Benz S-Class.
Daimler AG, móðurfélag Mercedes Benz hefur selt þann 4% hlut sem fyrirtækið átti í bandaríska rafbílaframleiðandanum Tesla. Fyrir þann hlut fékk Daimler 94 milljarða króna og hefur þessi fjárfesting Daimler skilað miklum hagnaði.

Það var reyndar ekki upphaflega ástæðan fyrir kaupum Daimler á hlutum í Tesla. Tesla hefur útvegað Mercedes Benz íhluti í tvinn- og rafmagnsbíla þeirra á undaförnum árum og því kom þessi fjárfesting til.

Það að Daimler selji þessi bréf boðar ekki endalok samstarfs Mercedes Benz við Tesla og mun Tesla áfram selja Benz íhluti í rafmagnsdrifrásir. Forstjóri Daimler lét hinsvegar hafa eftir sér að þróun á rafmagnsbílum Mercedes Benz sé að vissu leiti lokið og því ekki sama ástæða fyrir samstarfinu við Tesla.

Við þær fréttir að Daimler hefði selt bréf sín í Tesla lækkuðu bréfin í kauphöllinni í New York um 3%. Þau eru þó enn mjög hátt skráð, eða á 235,34 dollarar á hlut. Bréfin hafa hækkað um 56% á árinu, en ávöxtun þeirra hefur verið stjarnfræðileg á undanförnum árum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×