Enski boltinn

Benteke með glæsimark í sigri Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Benteke skoraði magnað mark gegn Swindon.
Benteke skoraði magnað mark gegn Swindon. vísir/getty
Liverpool bar sigurorð af Swindon í síðasta æfingaleik liðsins áður en enska úrvalsdeildin hefst.

Christian Benteke kom Liverpool yfir á 48. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir félagið, og það var í glæsilegri kantinum. Belginn tók boltann á kassann á vítateigslínunni og þrumaði honum á lofti í netið.

Jonathan Obika jafnaði fyrir Swindon, sem leikur í C-deildinni á Englandi, á 63. mínútu en hinn 18 ára gamli Sheyi Ojo tryggði Liverpool sigurinn þegar hann skoraði þremur mínútum fyrir leikslok.

Liverpool sækir Stoke City heim á laugardaginn í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×