Bílar

Benni frumsýnir nýjan Korando

Finnur Thorlacius skrifar
Nýi SsangYong Korando jeppinn.
Nýi SsangYong Korando jeppinn.
Bílabúð Benna frumsýnir, laugardaginn 20. janúar, nýjan Korando jeppa frá SsangYong, bæði á Tangarhöfðanum og á Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Í kynningu frá fyrirtækinu kemur fram að hann sé fjórhjóladrifinn og hár undir lægsta punkt. Félag breskra hjólhýsaeigenda valdi hann “Towcar of the Year 2018” í sínum flokki, en hann hefur magnaða dráttargetu.

Nýr Korando státar af stílhreinu og kröftugu útliti, þar sem hugvitsamleg hönnun sér m.a. til þess að bíllinn er óvenju rúmgóður að innan, auk þess sem enginn miðjustokkur er í gólfinu á honum. Þannig gefst nóg fótapláss fyrir alla farþega. 

Í tilefni frumsýningarinnar er nýr Korando boðinn með 530 þúsund króna kynningarafslætti. Frumsýningin hjá Bílabúð Benna, nú á laugardaginn, stendur yfir frá kl. 12 til 16. Allir eru velkomnir á frumsýningu nýs Korando hjá Bílabúð Benna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×