Fótbolti

Benni bongó með blys á lofti eftir sigur strákanna okkar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tólfan, stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins í fótbolta, lagði ekki land undir fót að þessu sinni til að elta strákana okkar til Astana í Kasakstan.

Þess í stað söfnuðust tugir saman á Ölveri í Glæsibæ til að horfa á leikinn en það er annar heimavöllur Tólfunnar.

Stemningin var auðvitað rafmögnuð eins og alltaf í kringum þessa hressu stuðningsmannasveit og var fjörið í hámarki eftir leikinn.

Þá skellti sveitin sér út fyrir og tendraði blys í tilefni sigursins. Benni bongó, sem sér um bongótrommuslátt Tólfunnar, veifaði þeim af krafti á meðan lagið „Tólfan kemur“ var sungið.

Hér að ofan má sjá stemninguna eftir leik og nokkrar myndir á meðan leiknum stóð má finna hér að neðan. Allt þetta er í boði athafnamannsins Friðgeirs Bergsteinssonar.

Árni Superman að sjálfsögðu á fremsta bekk. Húsið pakkfullt.mynd/friðgeir
Joey Drummer ber trommurnar eins og alltaf.mynd/friðgeir
Friðgeir Bergsteinsson í góðum málum á Ölveri í dag.mynd/friðgeir

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×