Innlent

Benedikt um stjórnarmyndun: „Meira í gangi en menn halda“

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Benedikt Jóhannesson.
Benedikt Jóhannesson. vísir/stefán
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir enga formlega fundi á dagskrá milli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Hann segir marga kosti vera í stöðunni varðandi myndun ríkisstjórnar og að fólk sé að ræða saman þvert á flokka.

Aðspurður hvort að líklegra sé að flokkarnir þrír nái saman í þessari tilraun en í þeirri fyrstu, segir Benedikt að ómögulegt sé að segja hver niðurstaðan verði.

„Það er kannski meira í gangi en menn halda, þannig að ég veit ekki alveg hvað segja skal. Það eru auðvitað margir kostir. En fólk er að tala saman þvers og kruss. Þannig að það er eiginlega ómögulegt að segja hvað verður. Það er bara ekki komið á það stig,“ segir Benedikt í samtali við Vísi.

Sjá einnig:Ræddu Málamiðlunartillögur Bjarna

Þingflokkur Viðreisnar kom saman til fundar síðdegis í gær til að ræða málamiðlunartillögur formanns Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hittust formenn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar á fundi í gær til að ræða mögulegt stjórnarsamstarf.

„Við bara töluðum saman, það er svolítið virðulegt að kalla það viðræður.“

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tók tók þá ákvörðun í síðustu viku að veita engum formlegt umboð til stjórnarmyndunar og tók hann þá einnig fram að hann vænti fregna um helgina eða í byrjun þessarar viku.

Sjá einnig:Forsetinn veitir engum stjórnarmyndunarumboð: „Engin ástæða til taugaveiklunar“

Aðspurður segist Benedikt ekki vita hvort að forsetinn eigi von á símtali um formlegar stjórnarmyndunarviðræður.

„Ég skal ekkert um það segja. En það að minnsta kosti engir fundir komnir á dagskrá ennþá, ekki sem ég veit um.“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, staðfesti jafnframt í samtali við Vísi að ekki hefði verið boðað til þingflokksfundar hjá Sjálfstæðisflokknum í dag.


Tengdar fréttir

Líkur á samstarfi aukast

Formenn flokkanna ræddust við í gær og þykir ekki ólíklegt að þeir hefji aftur formlegar stjórnarmyndunarviðræður.

Ræddu málamiðlunartillögur Bjarna

Þingflokkur Viðreisnar kom saman til fundar síðdegis til að ræða málamiðlunartillögur formanns Sjálfstæðisflokksins í meðal annars evrópu- og sjávarútvegsmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×