Körfubolti

Benedikt gerði þriggja ára samning við Þór á Akureyri

Úr Þór í Þór. Benedikt heldur sig við að þjálfa Þórsara.
Úr Þór í Þór. Benedikt heldur sig við að þjálfa Þórsara. vísir/vilhelm
Benedikt Guðmundsson er búinn að skrifa undir samning við 1. deildarlið Þórs frá Akureyri.

Þjálfarinn snjalli skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.

Benedikt þekkir það vel að þjálfa Þórsara enda hefur hann verið þjálfari Þórs úr Þorlákshöfn undanfarin ár en lét af því starfi á dögunum.

Fleiri félög höfðu áhuga á Benedikt og þar á meðal Keflavík. Hann ákvað aftur á móti að skella sér norður.

„Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessu strax í upphafi og tel þetta vera það rétta fyrir mig," segir Benedikt.

„Þarna er spennandi tækifæri í stóru bæjarfélagi að búa eitthvað til. Móta lið eftir mínu höfði og ég get ekki beðið eftir því að hefjast handa."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×