Lífið

Benedict Cumberbatch hermir eftir Beyoncé

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Benedict Cumberbatch kann ýmislegt fyrir sér.
Benedict Cumberbatch kann ýmislegt fyrir sér. Vísir/AFP
Leikarinn Benedict Cumberbatch er gestur í spjallþætti Grahams Norton sem sýndur er á BBC America í kvöld.

Nokkur brot hafa birst til kynningar á þættinum á netinu, þar á meðal myndbandið hér að neðan.

Þar skorar leikkonan Miranda Hart á Cumberbatch í að herma eftir dramatísku labbi söngkonunnar Beyoncé sem Hart kallar "Crazy in Love-labbið".

Það er skemmst frá því að segja að Cumberbatch tók áskoruninni og hermdi á listilegan hátt eftir Beyoncé.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×