Fótbolti

Bendtner laus allra mála

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bendtner í sínum síðasta leik með Wolfsburg.
Bendtner í sínum síðasta leik með Wolfsburg. vísir/getty
Nicklas Bendtner og Wolfsburg hafa náð samkomulagi um starfslok leikmannsins. Hann er því án félags.

Daninn var með samning við félagið til ársins 2017 en fær að fara strax í dag.

Bendtner hefur lent í alls konar vandræðum hjá félaginu og hefur ekki mátt mæta á æfingar síðustu vikur. Hann gerði vitleysur eins og að mynda sig við hlið Mercedes Benz-bifreiðar á meðan Volkswagen styrkir Wolfsburg.

Bendtner kom til félagsins frítt árið 2014 og spilaði 47 leiki fyrir Wolfsburg og skoraði í þeim leikjum 9 mörk.

Klaus Allofs, íþróttastjóri félagsins, sagði að Bendtner hefði ekki staðið undir væntingum og að félagið hefði ekki gert það heldur að mati Danans. Því væri engin glóra í því að halda samstarfinu áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×