Fótbolti

Benatia genginn til liðs við Bayern Munchen

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mehdi Benatia í leik með Roma.
Mehdi Benatia í leik með Roma. Vísir/Getty
Bayern Munchen gekk í dag frá kaupunum á marokkóska varnarmanninum Mehdi Benatia frá Roma en talið er að þýsku meistararnir greiði 26 milljónir evra fyrir þjónustu hans.

Benatia sem gekk til liðs við Roma síðasta sumar eftir að ítalska stórveldið seldi brasilíska miðvörðinn Marquinhos til Paris Saint Germain.

Benatia sló í gegn á sínu fyrsta tímabili og var hluti af liði Roma sem tapaði aðeins tveimur af fyrstu 35 leikjum sínum á tímabilinu.

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Bayern Munchen, vildi bæta við sig miðverði eftir að Javi Martinez sleit krossbönd um daginn og var hann fljótur að ganga frá kaupunum á Benatia sem var orðaður við Barcelona, Chelsea og fleiri stórlið í allt sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×