Lífið

Ben Stiller um Ólaf Darra: „Þessi gaur er magnaður leikari“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ólafur Darri hefur leikið með Stiller í myndum hins síðarnefnda.
Ólafur Darri hefur leikið með Stiller í myndum hins síðarnefnda. vísir/getty
Hollywood-stjarnan og Íslandsvinurinn Ben Stiller er greinilega mikill aðdáandi Ólafs Darra Ólafssonar ef marka má tíst hans frá því fyrr í dag. Þeir félagar ættu að þekkjast vel enda hafa þeir leikið saman í tveimur myndum.

Minnir Stiller fylgjendur sína á það að fylgjast með þáttunum The Missing á BBC en þar leikur Ólafur Darri hlutverk og hefur hann fengið góða dóma fyrir leik sinn í þáttunum, þar á meðal frá gagnrýnenda The Guardian.

Ólafur Darri og Stiller léku saman í The Secret Life of Walter Mitty og Zoolander 2 og ljóst er að Ólafur Darri hefur heillar Stiller. Líkt og sjá má í tísti Stiller vísar hann á mynd af Ólaf Darra og segir sjálfur: „Þessi gaur er magnaður leikari“


Tengdar fréttir

Ben Stiller elskar Ísland

Ben Stiller leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni The Secret Life Of Walter Mitty. Hann dáist af landi og þjóð og segir Íslendinga ríka af góðum leikurum.

Súrrealískt að vinna með Ben Stiller

Ólafur Darri Ólafsson leikur á móti Ben Stiller í kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty en myndin verður frumsýnd hér á landi í byrjun næsta árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×