Golf

Ben Martin í góðum málum fyrir lokahringinn á TPC Summerlin

Ben Martin var í stuði í gær.
Ben Martin var í stuði í gær. AP
Ben Martin leiðir fyrir lokahringinn á Shriners mótinu sem fram fer í Las Vegas en hann er á 17 höggum undir pari eftir fyrstu þrjá hringina. Martin fór á kostum á þriðja hring í gær á TPC Summerlin vellinum en hann fékk tíu fugla og kom inn á 62 höggum eða níu undir pari.

Í öðru sæti er Russell Knox frá Skotlandi á 15 höggum undir pari en Andrew Svoboda og Jimmy Walker, sem lék einnig frábært golf í gær, deila þriðja sætinu á 13 höggum undir pari.

Webb Simpson, sem sigraði í mótinu á síðasta ári, hefur varið titil sinn vel en hann er á 12 höggum undir pari og gæti með góðum lokahring blandað sér í baráttuna um sigurinn.

Athyglisvert verður að sjá hvort að Ben Martin stenst pressuna sem fylgir því að leiða mót á PGA-mótaröðinni fyrir lokahringinn en bein útsending frá TPC Summerlin verður á Golfstöðinni frá klukkan 21:00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×