Lífið

Ben Affleck og Jennifer Garner tilkynna um skilnað

Atli Ísleifsson skrifar
Affleck og Garner eru bæði metin á 150 milljónir dollara eða því sem samsvarar 21 milljarð íslenskra króna.
Affleck og Garner eru bæði metin á 150 milljónir dollara eða því sem samsvarar 21 milljarð íslenskra króna. Vísir/AFP
Bandaríska leikaraparið Ben Affleck og Jennifer Garner eru skilin. Affleck og Garner sendu frá sér tilkynningu þessa efnis fyrr í kvöld.

Tíu ár voru í gær liðin frá því að þau gengu í hjónaband, en saman eiga þau þrjú börn, þau Violet, níu ára, Seraphina, sex ára, og Samuel, þriggja ára.

Í tilkynningu segir að ákvörðunin um að skilja hafi verið sameiginleg og segjast þau staðráðin í að vinna áfram saman að því að ala upp börn sín. Biðja þau fjölmiðla um að veita börnum sínum svigrúm á þessum erfiða tíma.

Þau eru bæði metin á 150 milljónir dollara eða því sem samsvarar 21 milljarð íslenskra króna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×