Glamour

Bella Hadid rokkar buxnakeðjuna

Ritstjórn skrifar
Það er ansi langt síðan það sást seinast í buxnakeðjuna.
Það er ansi langt síðan það sást seinast í buxnakeðjuna. Mynd/Getty
Fyrirsætan Bella Hadid er óstöðvandi tískuafl sem rokkar hvert 90s trendið á fætur öðru. Í þetta sinn steig hún út með buxnakeðjur eins og voru vinsælar í kringum aldamótin. 

Þökk sé tískuhúsinu Vetements er keðjan að snúa aftur en endurkoman er umdeild. Annað hvort hatar maður keðjuna eða elskar hana. Bella elskar hana greinilega og við erum opnar fyrir þessu trendi sem líklegast fleiri munu rokka á næstu misserum. 

Keðjurnar hafa ávallt verið vinsælar við gallabuxur en Bella sýnir hversu auðvelt það er að stílisera þær við fínni buxur við hin ýmsu tilefni. 






×