Glamour

Bella Hadid og The Weeknd hittust enn og aftur á tískupallinum

Ritstjórn skrifar
Frá því að Bella Hadid og The Weeknd hættu saman hafa þau tvisvar sinnum lent í því að vera saman á tískusýningu. Í fyrra skiptið var það í nóvember þegar hann söng á Victoria's Secret tískusýningunni þegar Bella Hadid gekk tískupallinn. Í gær kom hann fram á H&M Studio sýningunni á meðan Bella gekk. 

Í lok sýningarinnar gekk Bella ásamt Gigi, systur sinni, og restinni af fyrirsætunum. Flestar voru þær dansandi við tónlist the Weeknd en Bella og Gigi gengu tískupallinn, þó léttar í lund. 

Hvorugt þeirra hefur tjáð sig um bæði þessi atvik en það er auðvelt að trúa að uppákomurnar hafi verið vandræðalegar. 



That look you give your sister and she just knows @bellahadid @gigihadid @hm #pfw

A post shared by Nikki Ogunnaike (@nikkiogun) on

When you run into your ex but you're a Victoria's Secret Angel #vsfashionshow

A post shared by Sally Holmes (@sallyholmes) on






×