Fótbolti

Belgíska snótin rekin frá snyrtivörurisanum

Axelle brosir ekki í dag.
Axelle brosir ekki í dag. vísir/getty
Belgíska stúlkan Axelle Despiegelaere hlaut heimsathygli á HM og fékk í kjölfarið samning hjá snyrtivörurisanum L'Oreal eins og Vísir greindi frá í gær.

Skjótt skipast veður í lofti því L'Oreal er búið að segja upp samningnum við þessa 17 ára gömlu stúlku.

Ástæðan er sögð vera umdeild mynd sem Despiegelaere birti á Facebook-síðu sinni. Þar er hún með riffil í Afríku og nýbúin að fella dýr.

Við myndina skrifar hún að nú sú tími til þess að veiða Bandaríkjamenn en færslan fór inn sama dag og Bandaríkin og Belgía kepptu á HM.

Þessi brandari þótti ekki sæma L'Oreal-stúlku og því var henni sparkað.

Færslan sem felldi Axelle.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×