Erlent

Belgi með bein tengsl við árásirnar í París handtekinn í Marokkó

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega 130 manns féllu í hryðjuverkaárásunum í París þann 13. nóvember síðastliðinn.
Rúmlega 130 manns féllu í hryðjuverkaárásunum í París þann 13. nóvember síðastliðinn. Vísir/AFP
Belgi með „bein tengsl“ við hryðjuverkaárásirnar í París hefur verið handtekinn í Marokkó. Talsmaður innanríkisráðuneytis landsins segir manninn hafa verið handtekinn í hafnarborginni Mohammedia.

Í frétt Sky News kemur fram að maðurinn sé af marokkóskum uppruna. Hann hefur ekki verið nafngreindur og hafa marokkósk yfirvöld einungis gefið upp upphafsstafi mannsins á arabísku.

Talsmaður innanríkisráðuneytisins segir að maðurinn hafi barist með uppreisnarhópi Nusra-hreyfingarinnar í Sýrlandi áður en hann gekk til liðs við ISIS.

Rúmlega 130 manns féllu í hryðjuverkaárásunum í París þann 13. nóvember síðastliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×