Fótbolti

Belgar keyrðu yfir Ungverja í síðari hálfleik | Sjáðu mörkin

Toby skallar boltann í markið.
Toby skallar boltann í markið. Vísir/getty
Belgar eru komnir í átta liða úrslit eftir 4-0 sigur á Ungverjalandi, en Belgarnir gerðu út um leikinn í síðari hálfleik. Fjórir leikmenn skoruðu mörkin fjögur.

Toby Alderweireld kom Belgunum yfir á tíundu mínútu með skallamarki á tíundu mínútu eftir aukaspyrnu Kevin de Bruyne. Belgarnir leiddu 1-0 í hálfleik.

Ungverjarnir sóttu aðeins í sig veðrið í síðari hálfleik, en Michy Batshuayi kom inná sem varamaður á 76. mínútu og var búinn að skora tveimur mínútum síðar eftir undirbúning Eden Hazard.

Hazard skoraði svo mínútu síðar með frábæru einstaklingsframtaki og Yannick Ferreira-Carrasco skoraði fjórða mark Belgíu í uppbótartíma, en hann skoraði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir tæpum mánuði síðan.

Belgía spilar við Wales í átta liða úrslitum á föstudaginn, en leikið verður á Villeneuve-d'Ascq í Lille.

1-0:
2-0 og 3-0: 4-0:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×