Fótbolti

Belgar buðu til markaveislu | Öll úrslit dagsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Átta leikir fóru fram í undankeppni HM 2018 í dag.

Lærisveinar Robertos Martínez í belgíska landsliðinu buðu til markaveislu gegn Eistum á heimavelli.

Belgar unnu leikinn 8-1 og hafa nú skorað 21 mark í fyrstu fjórum leikjunum í undankeppninni. Ekkert lið í Evrópu hefur skorað fleiri mörk í undankeppninni.

Belgía byrjaði leikinn af miklum krafti og eftir 25 mínútna leik var staðan orðin 3-0. Thomas Meunier, Dries Mertens og Eden Hazard skoruðu mörkin. Henri Arier minnkaði muninn í 3-1 á 29. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Belgar settu aftur í fluggírinn um miðjan seinni hálfleik og skoruðu þá þrjú mörk. Mertens skoraði sitt annað mark, Yannick Carrasco komst á blað auk þess sem Ragnar Klavan, fyrirliði Eista og leikmaður Liverpool, gerði sjálfsmark. Romelu Lukaku skoraði svo tvö mörk undir lokin og 8-1 sigur Belgíu staðreynd.

Belgar eru með tólf stig á toppi H-riðils, tveimur stigum á undan Grikkjum sem gerðu 1-1 jafntefli við Bosníumenn í ótrúlegum leik.

Georgios Tzavellas tryggði Grikklandi stig þegar hann jafnaði metin á fimmtu mínútu í uppbótartíma.

Á þeim tímapunkti voru bæði lið einum færri. Edin Dzeko, fyrirliði Bosníu, fékk að líta rauða spjaldið fyrir að girða niður um Sokratis Papastathopoulos, varnarmann Grikkja. Átök brutust út eftir þetta ótrúlega atvik og Grikkinn Kyriakos Papadopoulos fékk einnig rauða spjaldið.

Myndband af þessari stórfurðulegu uppákomu má sjá með því að smella hér.

Í sama riðli vann Kýpur 3-1 sigur á Gíbraltar.

Memphis Depay skoraði tvívegis þegar Holland vann 1-3 útisigur á Lúxemborg í A-riðli. Í sama riðli vann Búlgaría Hvíta-Rússland með einu marki gegn engu.

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk og klúðraði vítaspyrnu í 4-1 sigri Portúgals á Lettlandi í B-riðli.

Evrópumeistararnir eru með níu stig í 2. sæti riðilsins, þremur stigum á eftir toppliði Svisslendinga sem unnu Færeyinga 2-0.

Í sama riðli vann Ungverjaland 4-0 sigur á Andorra.

Úrslitin í dag:

A-riðill:

Lúxemborg 1-3 Holland

0-1 Arjen Robben (36.), 1-1 Maxime Chanot, víti (44.), 1-2 Memphis Depay (58.), 1-3 Memphis (84.).



Búlgaría 1-0 Hvíta-Rússland

1-1 Ivelin Popov (10.).



B-riðill:

Portúgal 4-1 Lettland

1-0 Cristiano Ronaldo, víti (28.), 1-1 Arturs Zjuzins (67.), 2-1 William Carvalho (70.), 3-1 Ronaldo (85.), 4-1 Bruno Alves (90+2.).

Sviss 2-0 Færeyjar

1-0 Eren Derdiyok (27.), 2-0 Stephan Lichtsteiner (83.).

Ungverjaland 4-0 Andorra

1-0 Zoltán Gera (33.), 2-0 Ádám Lang (43.), 3-0 Ádám Gyurcsó (73.), 4-0 Ádám Szalai (88.).

H-riðill:

Belgía 8-1 Eistland

1-0 Thomas Meunier (8.), 2-0 Dries Mertens (16.), 3-0 Eden Hazard (25.), 3-1 Henri Anier (29.), 4-1 Yannick Carrasco (62.), 5-1 Ragnar Klavan, sjálfsmark (64.), 6-1 Mertens (68.), 7-1 Romelu Lukaku (83.), 8-1 Lukaku (88.).

Grikkland 1-1 Bosnía

0-1 Orestis Karnezis, sjálfsmark (33.), 1-1 Giorgos Tzavellas (90+5.).

Kýpur 3-1 Gíbraltar

1-0 Kostas (29.), 1-1 Lee Casciaro (51.), 2-1 Pieros Sotirou (65.), 3-1 Valentinos Sielis (87.).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×