Lífið

Beita sér fyrir betra lífi, góðvild og friði

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
„Þessi dagur verður með alls konar skemmtilegu ívafi og við erum að láta af okkur gott leiða og kynna okkur,“ segir Guðbjörg Alfreðsdóttir, umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi, um Rótarýdaginn í dag, laugardag, sem haldinn er hátíðlegur víða um landið á mismunandi tímum.

Hér á landi eru starfandi þrjátíu Rótarýklúbbar. Hver klúbbur hefur frjálsar hendur um skipulag dagsins en allir munu þeir vekja athygli á því fyrir hvað Rótarý stendur.

Rótarý er hreyfing fólks úr flestum starfsgreinum. Hreyfingin er alþjóðafélagsskapur sem starfar í meira en 200 löndum í öllum heimsálfum. Félagar eru um 1,2 milljónir í um 34 þúsund klúbbum.

Guðbjörg segir samtökin fremstu mannúðar- og þjónustusamtök í heimi sem beita sér fyrir betra lífi, góðvild og friði. „Ég hvet alla til að mæta í dag hjá klúbbnum sem er næstur hverjum og einum og kynna sér starfsemina,“ segir Guðbjörg.

Meðal þess sem er á dagskrá í dag er Rótarýrokk fyrir unglinga í Bæjarbíói í Hafnarfirði á vegum tveggja Rótarýklúbba þar í bæ. Rótarýklúbbur Sauðárkróks er með skemmtilega sögugöngu um bæinn, með leiðsögn og dagskrá á Kaffi Króki.

Margt fleira er á döfinni í dag og hægt er að kynna sér dagskrá allra klúbbanna á heimasíðu Rótarý á Íslandi.

Á vegum alþjóðahreyfingarinnar starfar sjóður, Rótarýsjóðurinn, sem klúbbar um allan heim leggja fé til. Hann ráðstafar rúmlega 100 milljónum dollara árlega til fræðslu- og mannúðarmála. Guðbjörg segir sjóðinn mjög vel rekinn og að 97 prósent fjár sem fari í sjóðinn renni í verkefni á vegum hreyfingarinnar. „Til dæmis hefur sjóður Bills Gates, stofnanda Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækisins, og konu hans Melindu Gates, lagt mikið fé til útrýmingar lömunarveiki, vegna þess hve vel sjóðurinn er rekinn.“

Stærsta verkefni Rótarýsjóðsins undanfarin ár hefur einmitt verið að útrýma lömunarveiki. „Rótarý hefur með þessu kostað bólusetningar við lömunarveiki á ýmsum stöðum í heiminum og stutt það verkefni ötullega,“ segir Guðbjörg.

Rótarý á Íslandi styrkir einnig á hverju ári efnilegt tónlistarfólk.

Þá hefur ungt fólk fengið Rótarýstyrki til háskólanáms, bæði Georgiu-styrkinn og svonefndan friðarstyrk. Auk þess sendir Rótarý skiptinema og tekur á móti slíkum nemum ár hvert.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×