Innlent

Mannabein fundust í Kaldbaksvík á Ströndum

Jóhannes Stefánsson skrifar

Lögreglan á Vestfjörðum fékk í gær ábendingu frá ferðafólki um að mannslík væri í fjörunni í Kaldbaksvík á Ströndum. Lögreglan sendi mann á vettvang og var líkið fjarlægt. Líkið hafði greinilega verið töluverðan tíma í sjónum eða fjörunni enda var um beinagrind að ræða.

Líkið er nú í rannsókn kennslanefndar lögreglunnar sem reynir að bera kennsl á það, en lögreglunni hefur ekki tekist að bera kennsl á líkið samkvæmt upplýsingum fréttastofu Vísis. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og kennslanefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×